Skoða
KYNNINGARMYNDBAND SJÓNARHÓLS
Málefnahópur ÖBÍ um málefni barna stendur fyrir ungmennaþingi ÖBÍ. Þingið verður haldið laugardaginn 9. mars á Grand Hótel milli klukkan 13 og 16.
Alþjóðlegur dagur um sjaldgæfa sjúkdóma er 28. febrúar. Einstök börn og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins standa fyrir málþingi í tilefni dagsins á Grand Hótel Reykjavík kl. 13:00 - 16:00. Allir velkomnir, þátttaka ókeypis.
Kynningardagur Asparinnar fer fram í íþróttahúsi Klettaskóla laugardaginn 19. janúar næstkomandi milli klukkan 14 og 16.Þar mun fara fram kynning á þeim íþróttum sem Öspin hefur upp á að bjóða.Íþróttafélagið Ösp er félag án aðgreiningar en sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með fötlun og/eða sérþarfir.
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeiðið Skipulögð kennsla sem haldið verður 25. - 27. mars næstkomandi.
Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði TEACCH (Treatment and Education of Autistic and related Communication handicapped Children).
Skrifstofa Sjónarhóls-ráðgjafarmiðstöðvar verður lokuð frá hádegi 21. desember opnum við aftur fimmtudaginn 3. janúar.
Við óskum öllum vinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Jólakveðjur, Sigurrós, Inga Birna og Guðbjörg
Árlegur jólafundur Einhverfusamtakanna verður haldinn miðvikudaginn 5. desember, klukkan 20:00-22:00. Fundurinn verður að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
ÍSLENSKA
POLSKI
ENGLISH